Fara beint í efnið
BirtirSkrá inn
Auglýsingaþjónn

Hýstu auglýsingarnar, sjáðu tölurnar eftir miðli.

Birtir hýsir auglýsingar viðskiptavina þinna, sýnir þær hjá miðlum með einni línu af kóða og telur birtingar, In-screen og smelli.

Þrjár mælingar fyrir hvern miðil

Birtir skráir þrjá atburði fyrir hverja auglýsingu og sundurliðar þá eftir miðlinum sem birti hana.

  • Birtingar

    Ein birting er talin þegar auglýsingin hleðst inn hjá miðlinum.

  • In-screen

    Ein In-screen mæling er talin þegar að minnsta kosti helmingur auglýsingarinnar sést á skjánum í um það bil eina sekúndu.

  • Smellir

    Einn smellur er talinn þegar gestur smellir á auglýsinguna og fer á slóðina sem þú skráðir á hana.

Auk þess í skýrslum

Reach
Áætlaður fjöldi einstakra gesta sem sáu auglýsinguna.
Meðaltími í skjá
Hversu lengi auglýsingin er að meðaltali í sýn.

Miðill er greindur út frá vefslóð síðunnar sem sýnir auglýsinguna. Fyrir skjái og útiskilti tilgreinir pakkinn miðilinn beint.

Hvernig það virkar

Frá viðskiptavini að birtingu í fjórum skrefum.

  1. Skipuleggðu

    Stofnaðu viðskiptavin og vörumerki, síðan herferð með áföngum.

  2. Hladdu upp

    Hladdu upp myndum eða myndböndum. Birtir hýsir efnið á CDN og greinir stærðina sjálfkrafa.

  3. Sendu eina línu

    Búðu til scriptu, auglýsingapláss í þeirri stærð sem miðillinn þarf, og sendu honum eina línu af kóða.

  4. Tímasettu og fylgstu með

    Settu herferðina í scriptuna með birtingartímabili, vægi og forgangi. Tölurnar birtast í skýrslum.

Uppbygging herferða

  1. Viðskiptavinur
  2. Vörumerki
  3. Herferð
  4. Áfangar
  5. Auglýsingar

Áfangar skipta herferð niður í tímabil, til dæmis eina viku í senn. Staða og dagsetningar erfast niður: auglýsing birtist aðeins þegar hún sjálf, áfanginn og herferðin eru öll virk.

Áfangi sem merktur er sem yfirtaka birtist einn og sér meðan hann er virkur; aðrir áfangar sömu herferðar eru þá ekki sýndir.

Ein lína, margir miðlar

Scripta er endurnýtanlegt auglýsingapláss í fastri stærð með einni varanlegri slóð. Sömu línuna má senda til margra miðla og það þarf aldrei að senda hana aftur. Þú skiptir um herferð í Birti án þess að miðillinn þurfi að gera nokkuð.

Dæmi um innfellingarlínu
<iframe src="https://serve.birtir.app/p/SLUG" width="300" height="250" scrolling="no" style="border:0;overflow:hidden;width:300px;height:250px" title="Auglýsing"></iframe>

Raunverulegt auðkenni scriptunnar, hér SLUG, er búið til í stjórnborðinu.

Varamynd þar til auglýsingin er staðfest

Fyrir skjái og útiskilti býr Birtir til pakka sem þú hleður niður, einn fyrir hverja scriptu og hvern miðil.

Skjárinn sýnir því varamyndina í stað auðrar síðu eða villuboða.

Pakkinn ber nafn miðilsins, svo að birtingar skráist á réttan miðil þótt skjárinn sendi enga tilvísun.

  1. Varamynd birtist strax

    Pakkinn inniheldur kyrrmynd sem er sýnd um leið og hann opnast.

  2. Staðfesting

    Skjárinn spyr Birti hvort scriptan sé í birtingu núna.

  3. Skipt yfir í auglýsinguna

    Aðeins ef svarið er já er skipt yfir í auglýsinguna sjálfa. Ef staðfesting berst ekki, eða villa kemur upp, helst varamyndin sýnileg.

Skýrslur sem hægt er að deila

Tölurnar eru tiltækar fyrir hverja herferð og hvern viðskiptavin, og viðskiptavinurinn getur fengið að sjá þær án þess að fá aðgang að kerfinu.

Skýrsla fyrir hverja herferð
Birtingar, In-screen, smellir, CTR og reach, ásamt þróun yfir tíma. Sundurliðun eftir miðli, auglýsingu, tæki, landi og degi.
Yfirlit fyrir viðskiptavin
Skýrsla fyrir viðskiptavin sýnir tölur allra herferða hans í einu yfirliti.
Deiling með hlekk
Viðskiptavinur fær hlekk sem sýnir skýrslu herferðar eingöngu til lestrar, án innskráningar. Hlekkinn má afvirkja hvenær sem er og þá hættir slóðin að virka.
CSV-útflutningur
Sæktu tölur herferðar sem CSV-skrá til frekari vinnslu í töflureikni.

Aðgangur og aðskilnaður gagna

Birtir er byggður fyrir margar auglýsingastofur í sama kerfi.

  • Gögn hverrar stofu eru aðskilin

    Viðskiptavinir, herferðir, scriptur og skýrslur hverrar auglýsingastofu eru aðeins sýnileg þeirri stofu.

  • Innskráning með Google

    Notendur skrá sig inn með Google-vinnureikningi. Nýr notandi bíður samþykkis rekstraraðila Corvus, sem úthlutar honum stofu og hlutverki.

  • Reikningsgrunnur

    Birtir reiknar reikningsgrunn út frá fjölda birtinga og CPM-taxta, bæði milli Corvus og stofunnar og milli stofunnar og viðskiptavina hennar. Útreikningurinn er til upplýsinga; innheimta fer fram utan kerfisins.

Það sem Birtir gerir ekki

Engin bjóðun og engin miðun. Birtir býður ekki í auglýsingapláss og miðar ekki á markhópa. Hann hýsir, sýnir og mælir þær auglýsingar sem þú setur inn.

Skráðu þig inn í Birti

Innskráning fer fram með Google-vinnureikningi. Aðgangur er veittur eftir samþykki rekstraraðila Corvus.

Skoða kerfisstöðu
Skrá inn